Héðan frá Spáni er staðan eitthvað á þessa leið...

30.07.2009 11:56:43 / hjortur

Örlítil tæknileg vandamál á www.hjortur.is

Ástæða þess að þú ert hér á þessari síðu en ekki hinni hefðbundnu www.hjortur.is er sú að þessa dagana (hve lengi fer eftir dugnaði í mér...) er verið að laga til uppsetningu og umhverfi www.hjortur.is.

Ég mun þar af leiðandi ekki setja inn fréttir annars staðar en á Facebook þar til www.hjortur.is verður komin í lag. 




» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2009 03:01:58 / hjortur

Loksins, loksins eignaðist ég nafnið mitt...

Já það var mikið að ég eignaðist nafnið mitt, þ.e.a.s. á netinu. Nú eru og verða allar fréttir frá mér og mínum færðar inn á síðunni www.hjortur.is sem ég eignaðist á síðasta degi síðasta árs.

Þetta er því að öllum líkindum síðasta færslan sem ég rita á þessari slóð því eins og ritað var (og er) að ofan þá er www.hjortur.is nýja fréttasíðan mín.

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.12.2008 01:09:41 / hjortur

Lífshlaup Íslensku þjóðarinnar (ekki tæmandi frásögn)...

Ég var að uppgötva Frank Sinatra. Náði mér í The best of Frank Sinatra plötuna og hef verið að renna í gegnum hana. Lögin eru auðvitað bara frábær og textasmíðin algjört gull. Ég hef að vísu ekki kynnt mér hverjir það voru sem sömdu textana hans (eða hvort það var hann sjálfur) en fyrir mér skiptir það engu máli, textarnir eru frábærir og laglínan æðisleg.

Það er vel hægt að taka saman lífshlaup íslensku þjóðarinnar í fyrsta versi ,,That´s life" með Frank Sinatra:

That´s life, that´s what all the people say.
You´re riding high in April, shot down in May.
But I know I´m gonna change that tune when I´m back on top, back on top in June.
I said that´s life, and as funny as it may seem some people get their kicks stomping on a dream.
But I don´t let it, let it get me down, cause this fine old world, it keeps spinning around.

Já maður er nú ansi gömul (sígild) sál, eða a.m.k. í tónlistinni. Þegar ég var í grunnskólanum hlustaði ég mikið á Jimi Hendrix og er svo kominn í Sinatra núna... kannski ekki í takti við strauminn. En mér er líka nokk sama, því það sem ég fíla, það fíla ég.

Síðustu dagar hafa verið sérstaklega góðir þrátt fyrir töluverða heimþrá. Veðrið hefur verið að lagast hérna á Spáni og er maður núna peysuklæddur þegar farið er út. Að vísu eru janúar og febrúar eftir en í mínum huga er vorið bara rétt handan við hornið, enda vil ég skilgreina mig sem jákvæðan og bjartsýnan með eindæmum, la vida es bella (lífið er yndislegt).

Á gamlárskvöld ætla ég að elda grísalundir "a la pabbi" og í forrétt verður rækjukokteill, líka "a la pabbi", og svo frönsk súkkulaðikaka í eftirrétt. Svo loggum við okkur inn á netið og horfum á eitthvað íslenskt á ruv.is. Eftir það er pælingin að við kíkjum með Lilju Rún niður í bæ og könnum áramótahefðir Spánverja. Ég þarf að spjalla aðeins við Kínverjann vin minn sem er að vinna í Bazar Chino hérna rétt hjá og athuga hvort hann geti ekki reddað mér einhverjum flugeldum fyrir kvöldið... splæsi á hann harðfiski í staðinn :o)

Á nýársdag koma svo Alan enski og dóttir hans í heimsókn og ætlum við að elda fyrir þau ekta norðlenskt hangikjöt með uppstúfi, grænum Ora baunum, heimalöguðu rauðkáli og kartöflum. Í eftirrétt verður svo harðfiskur og hollenskt smjör.

Ég er annars búinn að vera í þvílíku kynningar- og ímyndarstarfi fyrir Ísland hérna. Ég datt inn í geggjaða austurlenska fata- og minjagripabúð hérna og tók afa Sigga á eigandann (afi Siggi gat nefnilega spjallað við hvern sem er um hvað sem er á hvaða tungumáli sem er, eins og þeir væru æskuvinir) og gaf honum svo um daginn DVD postcard from Iceland. Svo gaf ég köllunum í rætinni myndina "Þetta er ekkert mál" (um Jón Pál) og var hún spiluð fram og til baka á skjánum í salnum. Það fyllti mann svolitlu stolti að sjá Spánverjana dást að hinum eina og sanna íslenska víkingi á meðan þeir púluðu og svitnuði í tækjunum. Spánverjarnir voru svo sannarlega hrifnir af íslenska víkingnum Jóni Páli og hvernig hann kom fyrir og hvernig hann kom fram, svolítið annað en "útrásarvíkingar" nútímans hafa gert fyrir ímynd Íslands. Það hryggir mig líka að vita til þess að starf hins fallna boðbera íslenskrar hugsjónar hér á árum áður, Jóns Páls, skuli gleymast sökum þeirra gjörða sem "útrásar víkingarnir" kölluðu yfir okkur og hafa dunið á Íslendingum síðustu vikur og mánuði. Það mál allt verður að bíða betri tíma á þessari síðu.

Vil að lokum benda ykkur á heimasíðu Krafts: www.kraftur.org Þar eru saman komin ungt fólk og aðstandendur þeirra sem greinst hafa með krabbamein. Þetta félag mun væntanlega, líkt og önnur stuðningsfélög, finna illilega fyrir peningapíningunni sem okkur var hent út í og því mikilvægt að styðja við bakið á þeirri góðu starfsemi sem þar fer fram.

Ég vil bara að lokum óska ykkur gleðilegs árs kæru vinir, takk kærlega fyrir liðnar stundir og ég vona og veit að framtíðin verður okkur gleðileg og gæfurík.


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.11.2008 01:45:31 / hjortur

Viva la vida bella

Var (og er) að horfa á Silfur Egils á netinu. Gestir Egils eru m.a. Andri Snær Magnason, Mörður Árna, Ragnheiður Ríkarðs o.fl. Líkt og síðustu vikur er verið að tala um kreppuna og allt ruglið í kringum hana. Ég var að spá í að skrifa einhverja þanka um allt þetta hafarí en ég bara hreinlega nenni því ekki núna, eyði hvort eð er of miklum tíma í þær pælingar sem ég svo dembi yfir greyið Bjarneyju en á móti kemur þá er hún mun betur að sér varðandi ýmsa hluti sem voru henni áður hulin ráðgáta, t.d. stýrivexti, neysluvísitölu, gengisvísitölu, skuldatryggingu og allt hitt draslið.

En þá að máli málanna, hitinn í dag var um 24°c, fór niður í 18°c um kl 20 og er akkúrat núna ábyggilega nokkuð flottur. Ég skellti í tvöfalda uppskrift af ostakexi "a la mamma og amma" í dag sem þýðir þá væntanlega að kílóavísitalan hjá mér fer ekki niður næstu dagana (sem er, öfugt við fjármálavísitölur, frekar neikvætt). Ég bakaði (já ég!!!) eina tilraunauppskrift um daginn og held bara að ég hafi húkkað Lilju Rún á kexinu en Bjarney er ekki enn komin á þessa línu.
 
Fór á C.D. Rota (4. sæti) vs. Algeciras CF (2. sæti) í dag. Club de Rota er liðið mitt hérna og hafa þeir verið á ágætis siglingu í upphafi tímabils. Ég hef auðvitað ekki neina hugmynd um hvernig mót þeir voru að gera á síðasta tímabili en vona bara að þeir haldi áfram og bæti í þegar fram líða stundir. Leikurinn í dag endaði að vísu 1-2 fyrir Algeciras en mótið er bara nýbyrjað því hér er þetta alvöru, 34 umferðir og allt sem til þarf fyrir fótboltafíkilinn :d Það sem ég hef séð af liðunum hérna í 1. deild Andalúsíu þá áttar maður sig á því hve framarlega Íslendingar standa í knattspyrnuheiminum. Auðvitað er erfitt fyrir litla landið okkar að keppa við milljónaþjóðirnar en bara það hve hátt hlutfall knattspyrnumanna eru atvinnumenn erlendis er vitnisburður um gæði og metnað knattspyrnuhreyfingarinnar á Íslandi. Ég er nefnilega þess fullviss að margir strákar sem ég þekki í boltanum heima eiga fullt erindi á hærra stig erlendis, hafi þeir hug á því. Menn eiga að setja sér markið hátt og fylga því fast eftir.

Ég er á fullu í líkamsræktinni hérna úti, að vísu bara gömlukallaræktinni (úff...) því ég geng að meðaltali 4-6 km á dag sem er svipað og ég gekk á 2-4 vikum áður. Hérna er frábært að fara út að labba og skoða sig um því náttúran er rosalega flott hérna og auðvita allt öðruvísi en heima. Ég ætla að fara í vikunni til Jerez og athuga með að kaupa ódýra vespu því eftir hrunið á Íslandi verð ég að versla helmingi ódýra hjól en ég hafði ætlað. Það munar svo mikið um að geta snattað á hjólinu því í þessum hluta Spánar er tekin Siesta og því dagurinn svolítið slitinn hjá manni. Við sækjum Lilju Rún kl:14 á leikskólann og því lítill tími í snatt eftir það. Almenningssamgöngurnar eru reyndar mjög góðar hérna og kostar t.d. aðeins 1,40 Evru til El Puerto sem er 80 þús. manna bær hérna rétt hjá, í Jerez búa um 200 þús. manns. Strætóinn hérna kostar 0,50 og mánaðarkortið 10 Evrur.

Það er semsagt allt í fína á Spáni og ekki spillti fyrir stemmaranum að sjá Arsenal vinna Man.Utd 2-1 á pöbbnum niður í bæ, alltaf sweet að vinna United.

P.s. er gjörsamlega nikótínfrír á 9. viku and counting...

» 1 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti